1. |
Í Myrkri
03:11
|
|||
Í myrkri
í myrkri ég virðist verða ‘að myrkri
algjörlega litblindur
Ég set rósrauðu gleraugun á nefið
skuggar fortíðarinnar birtast í háskerpumynd
Hvað gerir þú
þegar engin er að horfa
Hvað gerir þú
einn tveir og núna.
Hvað gerir þú
þegar engin er að horfa
akkúrat núna.
Á réttri
Á réttri hillu
er aldrei of langt niður.
í tómu tjóni
í tómu rúmi
þú glitraðir skærast
í myrkrinu
Hvað gerir þú
þegar engin er að horfa
Hvað gerir þú
einn tveir og núna.
Hvað gerir þú
þegar engin er að horfa
akkúrat núna.
Ég er hér til að spilla þér
Ég er hér til að spilla þér
Ég er hér til að spilla þér
Ég er hér
Hvað gerir þú
þegar engin er að horfa
Hvað gerir þú
einn tveir og núna.
Hvað gerir þú
þegar engin er að horfa
akkúrat núna.
|
||||
2. |
Miðjarðarhafið
03:12
|
|||
Miðjarðarhafið
Hamagangurinn lemur
á sjónhimnurnar mínar
helmingurinn skýrist
er ég kíki í gegnum kýraugað
Það er skjólgott hér í brælunni
Í nótt geispa ég golunni
í kofa við miðjarðarhafið.
Tveir fuglar á grein
Eitt leyndarmál
Ég reyni’að greina ‘á milli
hægri og vinstri
Lít inn á við í fyrsta sinn
finn ekkert nema bleytu
Sólin er bara sjónarspil
Fyrir þá sem horfa ekki á sjónvarpið
Ég ýti eitthverju aftur inn
ekki var það sársaukinn
nú held ég út á upphafið
Það liggja orð í loftinu
Það liggja orð í loftinu
Það liggja orð í loftinu
Tveir fuglar á grein
Eitt leyndarmál
Ég reyni’að greina ‘á milli
hægri og vinstri
hægri og vinstri
hægri og vinstri
hægri og vinstri
|
||||
3. |
Yndisleg
03:24
|
|||
Yndisleg
Sálin orðin heldur móð
á skriðsundi í gegnum syndaflóð
ég er orðinn andlítill
en ég hef í huga andlit þitt
Er hún ekki yndisleg
gelsidny ikke núh re
hvernig sem ég lít á það
Ringulreiðin æðrulaus
ringulreiðin æðrulaus
skarkalinn er stefnulaus
hönd í hönd við höldum haus.
Er hún ekki yndisleg
gelsidny ikke núh re
hvernig sem ég lít á það
|
||||
4. |
Ský
03:22
|
|||
Ský
Vegurinn vindur upp á sig
umhverfið felur sig bak við strik
Ég stefni upp á við
fram á við þar sem það felur sig
ég er ský
skúlptúr í úlpu
ég er ský
skúlptúr í úlpu
Með meitill á lofti
í gufuhvolfinu
Um sama leiti
og það hvarflar að mér
að hvaðan ég sé
er það sem ég er.
ég er ský
Skúlptúr í úlpu
ég er ský
Skúlptúr í úlpu
Ég er ský
Skúlptúr í úlpu
Ég er ský
Skúlptúr í úlpu
|
||||
5. |
Langtíburtistan
03:26
|
|||
Langtíburtistan - A
Einu sinni var,
ég veit ekki lengur hvar.
Fann ég leiðina
til langtíburtistan.
Á sólríkri slóð
féll himalaya snjór.
Pabbi undir stýri
Enja á fóninum.
Slökum á í aftursætinu
jafnast á við karabíahaf.
Langtíburtistan
veit allt sem ég veit
Langtíburtistan
get ég farið einu sinni enn.
Langtíburtistan
veit allt sem ég veit
Langtíburtistan
get ég farið einu sinni enn.
Með skambyssu í hönd
kanna ókunn lönd,
frá vík yfir í fjörð
í svörtum spariskóm.
Það er andi í húsinu
með ör á enninu
eitt augnablik
eltir þig allt þitt líf
við eigum þennan ævintýraheim
reynum ekki að fela okkur þar
Langtíburtistan
veit allt sem ég veit
Langtíburtistan
get ég farið einu sinni enn.
Langtíburtistan
veit allt sem ég veit
Langtíburtistan
get ég farið einu sinni enn.
Við eigum þennan ævintýraheim.
Reynum ekki að fela okkur þar.
Langtíburtistan
veit allt sem ég veit
Langtíburtistan
get ég farið einu sinni enn.
Langtíburtistan
veit allt sem ég veit
Langtíburtistan
get ég farið einu sinni enn.
|
||||
6. |
Alla daga
03:42
|
|||
Alla daga
Kaffibolli kyssir mig á ennið
það er dagur í dag
eins og alla aðra daga.
Morgunkornið strýkur mér um vangan
það er dagur í dag
eins og alla aðra daga.
Ég fer til dyra
Ég kem til dyra
eins og ég sé klæddur
og komin á ról
Líkamsklukkan
skríður áfram
bíður ekki eftir mér
frekar en Megasi
Lóa lofaði að brúa bilið
milli meistaranna og mín
sagði að það nægði sér
ein ævi með mér
Ég fer til dyra
eins og ég sé klæddur
og komin á ról.
æði
út um dyrnar
Flæði
niður stigann.
Lek oní næsta ræsi.
Ég er orðinn einn
með hringrás vatnsins.
á morgun rignir mér niður
á morgun rignir mér niður.
Ég fer til dyra
Ég kem til dyra
eins og ég sé klæddur
og komin á ról
|
||||
7. |
Tilveran
03:06
|
|||
Tilveran
Er þetta tilveran
sál á fullri ferð
í einni svipan
vaxa hár undir handakrikan
Hvað er um að vera
hvað er ég að gera?
hverju er að tapa
ég er of upptekin við að fljúga til að hrapa
Hún þarf tiltal
þessi tilvera er tálsýn
og svotil tilitslaus
Hún þarf tiltal
þessi tilvera er tálsýn
og svotil tilitslaus
Í fjarlægum skilning
fjarlægist ég
skilningarvit mín.
Í sömu andrá og ég gekk framhjá
Hún þarf tiltal
þessi tilvera er tálsýn
og svotil tilitslaus
Hún þarf tiltal
þessi tilvera er tálsýn
og svotil tilitslaus
Þegar ég held að ég sé til
tilbúinn
Þegar ég held að ég sé til
tilbúinn
kastar mér á dyr
kastar mér á dyr
kastar mér á dyr
ég hélt ég væri til
Hún þarf tiltal
þessi tilvera er tálsýn
og svotil tilitslaus
Hún þarf tiltal
þessi tilvera er tálsýn
og svotil tilitslaus
|
||||
8. |
Hrafnastél
03:27
|
|||
Hrafnastél
Bank á dyrnar
myrkrið kviknar.
Ég vissi ekki að
ég væri hérna.
Spurningar
úr lausu lofti
svartir sauðir
jarma í takt við mig.
Hrafnastél
ég skola þér
niður með dass af of háum,
háum væntingum
Ég skríð titrandi
gegnum blómabeð.
Stend á sama gamla duftinu
og anda inn loftinu þínu.
Ég skríð í gegnum blómabeð
Og anda ’inn loftinu þínu
Hrafnastél
ég skola þér
niður með dass af of háum,
háum væntingum
|
||||
9. |
Snjókorn
03:24
|
|||
Snjókorn
Opin augu, frosinn draumur
undir þungu fargi.
Komast hvergi
horfa því frekar
inná við.
Í kyrrþey
Inní eilífðina
Eitt snjókorn í brotsjó
þekur heimsbyggðina
Ábyrgðin kúrir sig
Undir mjúkri ábreiðu
holskefla af skoðunum
skolast yfir þig.
Í kyrrþey
Inní eilífðina
Eitt snjókorn í brotsjó
þekur heimsbyggðina
Þau moka og vona
leita og neita
að grafa sig í kaf.
Í kyrrþey
Inní eilífðina
Eitt snjókorn í brotsjó
þekur heimsbyggðina
|
||||
10. |
Halar
03:12
|
|||
Halar
Skortir þig þorið
er heimurinn klofinn
ekki seinna vænna
lífið syngur í falsettu
með sinni bansettu staðfestu
eins og andsetinn kettlingur
kominn á ystu nöf.
Fyrr eða síðar
kemur allt til alls.
Við brúum bilið
meðan halarnir tala.
Ég legg spilin á borðið
hleyp eins og fjandinn.
Andinn kemur yfir mig
og ég renn út í sandinn.
Fyrr eða síðar
kemur allt til alls.
Við brúum bilið
meðan halarnir tala.
|
||||
11. |
Malbik
04:06
|
|||
Malbik
Hömluleysi
heldur mér niðri.
Stakir staurar á stangli
halda mér inni.
Í iðrum jarðar
er gott að vera
hvað varðar þig um það
þú ert búin að vera
Kórónur úr gaddavír
og snjóenglar frá Mósambík
Hér um bil – hér og þar
blóðheitir uppvakningar.
Í hjartastað
kolsvart malbik.
Í hjartastað
glansandi malbik.
Ferkantaðir ferfætlingar
í níunda veldi.
Ef allt fer eins og reiknað er með
og vera skildi.
Þá held ég í mitt illa fengna vald
með kulinni hendi.
Í hjartastað
kolsvart malbik.
Í hjartastað
glansandi malbik.
Holan þín er fjallið mitt.
Holan þín er fjallið mitt.
Innrammað
í gaddavír
gylltur eins og Gaddafi.
Í hjartastað
kolsvart malbik.
Í hjartastað
glansandi malbik.
|
||||
12. |
Við og við
03:07
|
|||
Við og við
Týndar dyr
leiða mig inná við.
Á báða bóga
endurspeglast fjall í hafinu.
Er það hollt
eða hættulegt?
Viðurkennt
eða ekki til?
Við og við
virðist ég staldra við
útfyrir þitt sjónarsvið.
Hurðin dillar sér
á freyðandi öldutoppunum.
Undiraldan kastar
kaldri kveðju á mig.
Hurðin dillar sér
á freyðandi öldutoppum
er það hollt eða hættulegt
viðurkennt eða ekki til.
við og við
sí og æ
við og við
sí og æ
við og við
sí og æ
við og við
sí og æ æ æ
Við og við
virðist ég staldra við
útfyrir þitt sjónarsvið.
|
||||
13. |
Vúdú
03:29
|
|||
Vúdú
Ég er spegilmynd
eftirherma
enda sér Drakúla sig
ekki í mér.
Ég er bíómynd
í skötulíki
stefni beinustu leið
inn í stofu til þín.
Ég er
frummynd af vúdú dúkku
Ég er
útidúr, eintómt vúdú
þú potar í mig með pinnahælum
(ég er)
laus frá raunveruleikanum.
Ég er uppskrift
afrit af kynslóð
ég kveiki á þér
og þú kveikir í mér.
Ég er spegilmynd
af eftirhermu
endalaus
endalaus…
Ég er
frummynd af vúdú dúkku
Ég er
útidúr, eintómt vúdú
þú potar í mig með pinnahælum
(ég er)
laus frá raunveruleikanum.
|
Gosi Ísafjörður, Iceland
Music to move your lips and hips to.
Streaming and Download help
If you like Gosi, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp